Practical Details in Equitable Commerce
I took a few moments just now to translate the beginning of Practical Details in Equitable Commerce by Josiah Warren into Icelandic. I was out walking and reading as I often do, and the words gripped me.
Núverandi ástand samfélagsins, hvort sem við lítum til þessa lands eða annars, er ástand gremju og ringulreiðar. Þótt tíma og auðlindum, að marki sem reiknast seint, hafi verið eytt í tilraunum til að kenna og stofna til Réttlætis, Manngæsku, Trúar og FRELSIS, höfum við séð þess í stað sterkari tilhneygingu til að auðlindir og vald gegnsýri allt samfélagið, á þann hátt að Réttlæti, Manngæska, Trú, Frelsi og Líf er nánast hundsað.
Trú á löggjafarvaldið fer minnkandi. Sérhvert ríki heims fer þverrandi; samfélagið, eins og skip í dimmum stormi, er rifið og því kastað af mótverkandi kröftum; vald mannana við stýrið sekkur niður í veikburða tilburði barna; okkar mölbrotna samfélagsmynd er ekki lengur stýranlegt, og við virðumst fljóta að óþekktum áfangastað.
Frá öðrum enda samfélagsins heyrum við byltingarópin, og kjörorðið er FRELSI! FRELSI! FRELSI! Það er hljómur í hverri mennskri veru sem ómar með þessu heilaga hljóðan, en, Æ! bara með hljóðan! Hvar er frelsi í raun? Hvar er það skilið? Hvar er nokkurt samfélagsskipan sem leyfir tilvist þess? Bylting tekur við af byltingu, breyting tekur við af breytingu, öld tekur við af öld í baráttu fyrir Frelsi! FRELSI! hefur verið herópið, og f r e l s i ! síðasta orðið frá nötrandi vörum deyjandi píslarvotts–en þó er frelsi enn ekkert nema hljóðan. Það vísar ekki til nokkurs ástands í siðmenntuðu lífi; það hefur enga frumgerð í samfélaginu; en, líkt og fögur tónlist í næturró, það brýst fram að eyrum og tælir sálina, og deyr svo út, og skilur ekkert eftir nema minningu um horfinn hljóm.
I retained his capitalizations, italics, etc, even when in stern opposition to Icelandic spelling and grammar, so as to keep the voice in which he so passionately wrote this. His writing stinks most profusely of him having lived in the 19th century - he was born in 1798 and died in 1874. He lived in the United States of America, where he formed several anarchist colonies - the Village of Equity, Ohio; Utopia, Ohio (close to Cincinnati); and Modern Times, New York (on Long Island). What little I know of his life is, well, bleak. There is a strong sadness there, and I hope I captured it with my pithy translation.


